11júlí

Bara smá blogg.

Jæja já þá er sumarfríið mitt á enda.. Byrja að vinna aftur í næstu viku.

Fór í dag austur með Kristlaugu. Við byrjuðum á því að fara til húsavíkur að skoða safnahúsið og þar var dót sem að amma hennar Kristlaugar átti. Voða gaman að skoða þetta safn. Þarna var líka uppstoppaður ísbjörn sem ég var skíthrædd við.. þetta var víst stærsti ísbjörn sem hefur verið uppstoppaður á íslandi. Hann var mjög stór og vorum við báðr mjög hræddar mér fannst hann í alvöru vera að hreyfa sig.. en svona á ég nú gott ýmindunarafl..
Frá Húsavík fórum við til mývatns og þar mættum við ömmu minni á röltinu með langömmu barnið sitt Þórhildi mér fannst pínu findið að mæta henni þarna á röltinu bjóst ekkert við því að sjá hana.. En systir mömmu býr þarna þannig að ég á nú altaf von á því að mæta einhverjum þarna í sveitinni. Við áhvöðum að fara að skoða hverina og fara svo til Línu systur mömmu í smá kaffi fyrst að það voru svona margir í heimsókn..
Þar fékk ég til dæmis að sá Emmu litlu frænku mína í fyrstaskiptið. Hún er afskaplega sæt og alveg einsog mamma sín hún Andrea. Fengum kaffi og með því og fengum að losa blöðruna áðuren engra var haldið.
Keyrðum síðan norður á leið aftur en komum við í Bárðardal. Keyrðum inn Bárðardalin og fórum í krikjugarðin þar sem ömmur og afar Kristlaugar hvíla. Keyrðum svo dalin til baka hinum megin við fljótið. Keyrðum svo heim á Akureyri og liggjum núna upp í sófa uppgefnar eftir allan axturinn..
Ætla að fara að horfa a sjónvarpið... 

Harpa.
11. júlí 2008 klukkan 20:00
Harpa Halldórsdóttir
Engin athugasemd
12júní

Sumarfrí og sumarsæla.

Jám þá er ég komin í sumarfrí.. Guð hvað það var notalegt að labba út af síðustu vaktinni vitandi það að ég þurfi ekki að vinna næstu 6 vikurnar.

Já sumarfríið byrjaði þannig að ég fór í útileigu í Ásbyrgi.. Það er rosalega fallegt þar. En það hefði mátt vera hlýrra.. Ég var að frjósa úr kulda allan tíman. Svaf ílla og var íllt í bakinu eftir fyrstu nóttina. 
Við keyrðum þarna niður í botnin og guð hvað það var fallegt þar.. Ég tók alveg helling af myndum.
Við fórum þarna með vinafólki okkar Elmari, Gunnsu og dóttur þeirra sem heitir Fanney..

index.cfm.jpg


index.cfm.jpg

Við vorum þarna frá föstudegi til sunnudags..

Svo í fyrradag þá fengum við okkur litla kisu. Fengum hann hjá mömmu hans Adda. Hann er alveg rosalega sætur.. Ég veit ekkert hvað hann á að heita.. Það eina sem mér dettur í hug en sem komið er er Skotti. Þegar hann er æstur þá titrar skottið hans alveg á fullu..

index.cfm.jpg

Svo er ekkert meira planað í sumarfríinu nema bíladagar.. Það má náttla ekki missa af neinu sko..
Og ég má nú ekki gleyma Mallorca ferðinni. Förum út 25 júní og verðum í viku.. Ætlum að fara suður svona 2 dögum áðuren við förum út. Ætlum að reyna að hitta eitthvað fólk fyrst við þurfum hvort sem er að fara suður..

Þetta er nú orðið ágætt í bili.. Skrifa meira þegar eitthvað meira er að frétta.

Harpa er í sumarskapi..
Harpie litla out
12. júní 2008 klukkan 21:09
Harpa Halldórsdóttir
1 athugasemd
29maí

Sumarfrí

Alveg að koma að því að ég fari í sumarfrí.. Þið vitið ekki hvað mig hlakkar mikið til..
Já og kallinn minn að koma heim á laugardaginn.. Hlakkar jafnvel meira til þess..
Jább nú á bara að vinna og vinna þangað til á miðvikudaginn.. Þá fer ég sko í sumarfrí kl 16:00 og ætla sko feitt að njóta þess í 5 vikur og 6 daga.. hehe

En blogga kannski um eitthvað skemmtilegt í fríinu mínu.. En þangað til ætla ég bara að hvíla mig..
Bless í bili..
Harpa

29. maí 2008 klukkan 22:13
Harpa Halldórsdóttir
Engin athugasemd
04maí

Smá blogg

Já ég áhvað að henda hérna inn nokkrum línum.
Við pöntuðum okkur ferð til Mallorca í júní. Fékk ferðina í afmælisgjöf frá adda. En ég á auðvitað ekki afmæli fyren 17 maí.. Ég fer svo í sumarfríi í júníbyrjun og mikið verður það nú ljúft og gott.. Fara á sólarströnd í viku á árhverju er það besta sem ég veit... 
Addi kom á föstudaginn og fer aftur á miðvikudaginn að ég held veit ekkert um það. En þeir koma svo aftur í land fyrir 1 júní..
Jæja þurkarinn argar á mig verð að fara að taka úr honum. og Kannski ég bróti þvottinn bara saman strax í þetta skiptið..

04. maí 2008 klukkan 22:35
Harpa Halldórsdóttir
Engin athugasemd
08apríl

Þá byrjar það aftur!!

Já þá er kallinn farinn á sjóinn aftur.. Eftir góðan tíma heima.. Gott að fá að hafa hann aðeins heima í lengur en 3 daga heehHlæjandi

Já við fórum á árshátíð á laugardaginn hjá samherja og það var bara ágætt... Ekkert gríðarlega gaman eiginlega bara ekkert gaman..
En já skemmti atriðin voru svona lala Örn Árna var veislustjóri og hann var alveg ágætur á sviðinu.. Svo var haldin einhver ræða þarna og þá hélt ég fyrir alvöru að ég mundi sofna en svo byrjaði nú maðurinn að tala á ensku fyrir útlendingana sem vinna hjá samherja og þá byrjaði nú fjörið.. Já maðurinn kunni bara allsekki að tala ensku.. Las hana greinilega bara einsog hún stóð á blaðinu sem hann var með fyrir framan sig.. og þetta var bara án efa besta skemmtiatriði kvöldsins..
Þessi kall sem hélt ræðuna sem er vís eitthvert stórmenni hjá samherja skoraði svo á Örn Árna að mæta hingað norður man ekki hvenar og skoraði á hann að keppa við sig í einhverju hlaupi og sagði svo "mér þætti gaman að sjá hvernig að hann kemur sér frá þessu..
Örn Árna sagði svo þegar að hann kom á sviðið aftur. .Að þessi maður væri nú ágætur í gríninuog skoraði á hann í staðinn að taka þátt í einum spaugstofu þætti og hann ætti að taka Kristján ólafson(Kristján heiti ég ólafson). En þetta er náttla ekkert fyndið þegar ég skrifa þetta eða segi frá því. En allvega þá þótti mér þetta fyndið..
Svo voru allt í einu mættir á sviðið Magni(móti sól),Matti(paparnir) og Eyþór sem er í bandinu hans bubba.. Þeir tóku öll bestu sveitaballalögin og nökkur gömul og góða rokklög.. Ég miskildi dæmið eitthvað og hélt að þeir væru hljómsveit kvöldsins og varð fyrir miklum vonbrigðum þegar þeir fóru af sviðinu og hljómsveit kvöldsins tók við.. Þvílikt væl og leiðindi.. Þessi hljómsveit sem spilaði á ballinu heitir saga class eða eitthvað álíka og þvílík hörmung.. Þá var áhveðið að drýfa sig bara í partý eða í bæinn..
Við fórum þá til Ómars sem er með Adda á sjó og stoppuðum þar í smá stund fórum svo bara heim. Vorum komin heim fyrir 3 enda þynnka í gangi frá kvöldinu áður.
Hefði kannski betur átt að eyða tíma í að skrifa um það því að það var skemmtilegt kvöld.. En einhvernveginn fannst mér að árshátíð ætti að vera skemmtileg svo af því að hún var það ekki áhvað ég bara að skrifa um það,.

Addi fór á sjóinn í gær og verður þar eitthvað veit ekki alveg hvað lengi en eitthvað um mánuð..
En já nú þarf eg að fara að taka til í koti enda ekki haft tíma til þess þennan tíma sem addi er búin að vera heima.. Búin að vera svo upptekin að gera ekki neitt með honum allan daginn og vera lasin og svoleiðis.. þannig að ég bara kveð í bili.

Harpie litla outSaklaus
08. apríl 2008 klukkan 09:52
Harpa Halldórsdóttir
Engin athugasemd
30mars

úffffffff.......

ÚFF.... Já þetta er búin að vera hálf erfið leiðinleg vika.
Fékk flensu fyrir ca 2-3 vikum og fékk svo 40 stiga hita á páska dag þegar ég kom heim úr vinnunni.. Er ekki en orðin alveg góð.. Fæ en beinverki og er stífluð af kvefu og er enþá með hósta..
Það er ekkert gaman að hanga svona heima hjá sér og hafa ekkert að gera.. Svo þegar ég var búin að vera með hita í 4 daga og ekkert búin að fara í vinnuna þá byrjaði ég í viku löngu vaktafríi og það er búið á fimmtudaginn í þessari viku sem er nú a byrja..

Það hefur voðalega lítið gerst eða breyst síðustu daga..

Erum að fara á árshátið samherja um næstu helgi eða 5 apríl.. Ég get ekki fundið neitt sem mig langar til að fara í og ég nenni ekki að fara í nýja fína kjólnum mínum því að hann pirrar mig svo hann er svo agalega fleginn að ég get ekki hugsað mér að fara í hann einusinni enn..
En mamma keypti handa mér svart pils um daginn og mér langar alveg að faraí því en þá þarf ég að finna eitthvað svakalega sparilegt til að fara í að ofan svo að ég sé nú svona árshátíðarleg..

Addi minn fer svo að fara á sjóinn fljótlega aftur og mér er farið kvíða því rosalega.. Það er búið að vera svo gott að hafa hann heima.. Hlæjandi

En já en aftur þá held ég að ég nenni varla að halda þessari síðu uppi.. nema bara útaf því að ég geymi myndirnar mínar hérna.. Ég verð bara á spacinu mínu..

Set kannski eitthvað hérna inn annað slagið og læt þá bara vita á msn..

Ætla að fara að halda áfram að spila bubbles..
Harpie litla outÓákveðinn

30. mars 2008 klukkan 18:11
Harpa Halldórsdóttir
Engin athugasemd
19mars

úff hef nákvæmlega ekkert að segja..

Já það virðist vera þannig að allar færslurnar mínar byrja á þessum orðum eða einhverjum líkum þessum..
Ég held að flestar blogg síður séu dauðar og myspace eða facebook búnar að taka við.. En ég er nú samt að pæla í því að hafa þessa áfram opna því að allar myndirnar mínar eru hérna sem ég á eftir.. Lenti í ´svo óheppilegri lífsreinslu um daginn, þannig er það að ég missti nú fartölvuna mína í gólfið og þar geymdi ég allar myndirnar mínar frá síðstu 4 árum eða svo. Ég tími svona varla að fara með hana í viðgerð því að ég held það sé voðalega dýrt.. Þar sem ábyrgðin er runnin út og talvan ótryggð.. ábyrgðin virkar samt ekkert á svona tjón.. Það fyndna er að það kveiknar alveg á tölvuni og skjárinn er bara grár.. og það leiðinlega er að ein af mínu uppáhalds dvd myndum situr föst í tölvunni og ég næ henni ekki úr.. (Bring it on)
En já nóg um tölvur..

Nú fara að koma páskar og flestir á fara í páska frí.. Ég er auðvitað að vinna alla páskana.. þannig að það verður ekkert páska djamm hjá mér.. Bara róleg heit og góður matur..

Náði mér í flensu um daginn og lá með hana í 5 daga eða svo.

En já já ég er ekki að nenna þessu þannig að ég ætla bara að fara að taka myndir og setja hérna inn..
Bless í bili..
Harpie litla Out..
19. mars 2008 klukkan 16:32
Harpa Halldórsdóttir
1 athugasemd
08mars

Mér leiðist og það er laugardagskvöld

Hvað er málið með það.. Að ég skuli láta mér leiðast svona á laugardagskvöldi..
Jæja ég ætla ekki að hanga fyrir framan tölvuna ég ætla að fara að gera eitthvað.. Eitthvað geggjað sniðugt.. og bara að segja að Addi minn er að koma heim á mánudaginn og mér hlakkar svo geggjað til.. ég held ég sé bara virkilega að fá í magan.. hehe Fæ alltaf þessa ónotatilfinningu í magan þegar hann er að koma heim.. ég verð svo stressuð ... ég er svo óeðlileg.. en já ég ætla að fara að gera eitthvað skemmtilegt....
Harpie litla out..



Bara varð að skella einni spánar mynd með.. Því að ég hlakka svo til að fara út aftur í sumar.. Þetta eru semsagt ég og Jen á klúbb sem heytir Trinity..
08. mars 2008 klukkan 21:28
Harpa Halldórsdóttir
Engin athugasemd
28febrúar

Jæja jám

Já hún Harpa litla er í fríi í vinnunni sinni í dag og henni leiðist.. En hún er nú samt búin að ryksuga skúra og bóna gólfin.. En samt ekki búin að gera neitt af þvi sem ég ætlaði að gera.. semsagt þurka af og vaska upp og svona.. Ganga frá draslinu sem er her um allt..
En já fyrst eg hef ekkert að tala um nema þryf og eitthvað annað leiðinlegt.. þá er ég í alvöru að hugsa um að hætta að blogga en kannski ekki alveg.. Ég kann bara ekki að skrifa þannig að það sé skemmtilegt að lesa.. svona í alvörunni..



Hildur, Addi og Harpa litla.. í borginni í fyrra..

Ég hef svo ekkert að segja og hef alveg ekkert að gera það huggar mig að ég þarf að mæta á deildarfund eftir ca hálftíma og þá hef ég allvega eitthvað að gera í smá stund..



Glæsileg mynd af okkur heima hjá jónasi og einsog sjá má var verið að fá sér smá öl eða bara já vodka.. hehe

En já ég er hætt í bili það skoðar þetta enginn og það kvittar enginn þannig að það má bara segja að þessi síða sé dauð í bili..
Harpie litla Out...
28. febrúar 2008 klukkan 14:06
Harpa Halldórsdóttir
Engin athugasemd
25febrúar

Bara nokkur orð því að ég nenni ekki að standa upp frá tölvunni.

Góðan daginn..
Jám ég var í fríi í gær og gerði einlega bara ekkert af því sem að ég ætlaði að gera.. Ég ætlaði að skúra og þurka af og gera allt voða fínt.. En já ég gerði ekkert af því nema hvað ég vaskaði upp og á en eftir að ganga frá því upp í skáp..
Ég þreif reyndar bílin að utan en ég nennti ekki að stada í því sjálf þannigað ég borgaði 1032 krónur til þess að fara með hann í þvottastöð.. jamm svo dugleg var ég..
Ég reyndar þvoði tvær vélar og þurkaði og gekk frá upp í skáp og lagaði aðeins til í honum enda veitti ekki af.. Fyrir utan það að fata skápurinn er að hringja þá eru skúffurnar mínar í óreiðu og ég þoli það ekki. það þarf helst að brjóta allt jafnt saman svo það sé gaman að sína inn í fataskápinn.. það má engin sjá hann í þessu standi nema þeira allra nánustu sem þekkja mig hvað best..hehe
En já lagaði til i sparifötunum mínum og reyndi aðeins að raði til í adda skáp.. en ég nennti því ekki.. hehe
já já en þetta er nú skemmtilegaumræðu efnið svo að ég ég ætla skifta um það.

já addi hringdi um daginn og hann fékk þessa gasalega góðu hugmynd að skella okkur á formúluna í sumar.. Ég er búin að leita einsog brjálæðingur af upplýsingum um svona ferðir á netinu en finn ekki neitt sem hentar okkur.. Þetta eru bara einhverjar hópferðir sem að eru í boði og svo ein ferð í apríl og ein í september. það þarf ekki að vera hópur í þær ferðir en við þurfum að fara í júni eða byrjun júlí.. Svo ég þarf aðeins að skoða þetta betur.

En já svo er hún Kristlaug mín búin að vera hjá mér um helgina og við erum búnar að hafa það svakalega gott og liggjan í leti alla helgina..
á fös fórum við aðeins á rúntin og Jónas hringdi og áhvöðum við að skutla honum og alla aðeins.. en það tók nú lengri tíma en ég hélt og þegar við vorum búnar að keyra þeim heim komumst við að því að þeir höfðu sullað út um gluggan vodka í appelsínu safa með aldínkjöti og önnurhliðin á bílnum var bara eitt klístur.. Mjög gaman þess vegna neiddist ég til þess að þrýfa bílin í gær..
Svo á laugardaginn var það náttla laugardagslögin.. Við héldumst í hendur með úrslitin komu og ljós og öskruðum við af hamingju gleði þegar í ljós kom að friðrik og regina færu til serbíu..
skruppum þá aðeins á rútin eftir það og fórum svo í smástund til mömmu og pabba og pabbi var ekkert spenntur yfir úrslitunum.. þar sem að friðrik ómar heillar ekki pabba minn.. þar sem hann er haldinn homma fóbíu á hæsta stigi og ég stríddi pabba aðeins fór inn á íslendingabók og sagði svo að friðrik væri frændi hans.. Hann vildi ekki trúa því.. hehe
en já þetta er búin að vera góð helgi.. gott að hafa félagskap á kvöldin og næturnar.. annars er ég búin að vera mikið hjá mömmu og pabba undanfarið þegar kristlaug er ekki hjá mér og addi á sjónum..
En já það er langt síðan að ég hef bloggað svona mikið þannig að ég er að spá í að láta þetta bara gott heita og skipa Krissu að blogga þegar hún kemur heim úr vinnunni í dag..
Harpie litla OutSvalur
25. febrúar 2008 klukkan 13:36
Harpa Halldórsdóttir
Engin athugasemd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit